Villas-Boas vill fá stuðning

André Villas-Boas. stækka

André Villas-Boas. Reuters

André Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur óskað eftir því að stjórnarmenn eða eigandi félagsins lýsi opinberlega yfir stuðningi við sig. Hann segir að þeir hafi sagt sér að þeir styðji að fullu við bakið á sér en vonast eftir því að heyra það frá þeim sjálfum.

Öll spjót standa á honum þessa dagana og enskir fjölmiðlar keppast við að spá því að hann verði næsti stjórinn sem verði látinn taka pokann sinn.

„Þessi orð þeirra væru mun áhrifameiri ef þeir segðu þetta sjálfir opinberlega. Ég get ekki staðið í því að bera þau á milli,“ sagði Villas-Boas á fréttamannafundi fyrir leik Chelsea gegn Napoli en fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram á Ítalíu í kvöld.

Chelsea hefur sigið niður í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar en Villas-Boas kveðst vinna eftir þriggja ára plani þar sem verið sé að endurnýja liðið.

„Vegna gengis liðsins í vetur er skiljanlegt að þessi umræða sé í gangi, þar sem þetta félag hefur verið á mikilli sigurbraut undanfarin ár. En þið verðið að átta ykkur á því að nú er unnið eftir öðrum forsendum. Við erum með þriggja ára plan þar sem við ætlum ekki bara að endurnýja liðið heldur uppbyggingu og menningu félagsins. Við þurftum að breyta mörgu og það er margt í gangi. Þess vegna er ég afar spenntur fyrir framtíðinni hjá félaginu.

En um leið verðum við að byggja upp lið sem vinnur titla. Við erum úr leik í deildabikarnum og eigum ekki möguleika á meistaratitlinum. En við höfum fulla trú á því að við náum langt í Meistaradeildinni og bikarkeppninni,“ sagði Villas-Boas.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is