Adebayor bjartsýnn fyrir Arsenalleikinn
Emmanuel Adebayor, framherjinn öflugi frá Tógó, er bjartsýnn á að hann nái sér af meiðslum í tæka tíð til að spila með Tottenham gegn sínum gömlu félögum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn.
Erkifjendurnir í Norður-London mætast þá á Emirates-leikvanginum en mörgum stuðningsmönnum Arsenal er í nöp við Adebayor eftir að hann yfirgaf félagið árið 2009 og gekk til liðs við Manchester City. Hann lék með Arsenal í þrjú ár og skoraði 46 mörk í 105 leikjum í úrvalsdeildinni. Í vetur hefur hann gert 10 mörk fyrir Tottenham í 22 leikjum en hann er þar í láni frá City.
Adebayor glímir við meiðsli í hné. „Ég er virkilega ánægður með framfarirnar hjá mér. Hnéð er miklu betra og ég legg hart að mér til að ná mér fyrir sunnudaginn," skrifaði framherjinn á Twitter í morgun.
Tíu stig skilja að Tottenham og Arsenal, en þó aðeins eitt sæti. Tottenham er í þriðja sæti með 53 stig og Arsenal í fjórða sæti með 43 stig.






