Ferguson: Met Giggs verður ekki bætt
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að met Ryans Giggs verði ekki bætt en velska goðsögnin leikur sinn 900. leik fyrir United á morgun komi hann við sögu í leiknum gegn Ajax í Evrópudeildinni.
Giggs hefur spilað 140 leiki fyrir rauðu djöflanna frá því hann bætti leikjamet sir Bobbys Charltons þegar United lagði Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Moskvu 2008.
Tom Cleverley, upprennandi stjarna í liði Manchester United, var 18 mánaða gamall þegar Giggs lék sinn fyrsta leik fyrir United gegn Everton árið 1991 en nú eru þeir orðnir 899 talsins og ferill hans hreint út sagt stórkostlegur. Giggs hefur hampað 12 Englandsmeistaratitlum og er eini leikmaðurinn sem hefur skorað á öllum 20 tímabilunum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
„Það er mitt persónulega álit, og það eru ekki allir sammála mér því öll eigum við okkar uppáhald, að það að hafa spilað jafnlengi í ensku úrvalsdeildinni og hann og afrekað það sem hann hefur gert geti enginn leikmaður leikið eftir. Með aldrinum hefur hann átt betra með að meðhöndla boltann og breyta um stöðu. Hann hefur leikið meira inni á miðjunni og sýnt aðrar hliðar á sér,“ segir Ferguson.
„Við munum alltaf hvað Ryan er frægur fyrir; fara upp og niður kantinn á fleygiferð með frábært jafnvægi og hraða. Í dag er Ryan Giggs öðruvísi. Hann getur enn sýnt hraðabreytingar og hefur gott jafnvægi en hann er ekki eins fljótur og fyrir 10 árum. Stanley Matthews spilaði þar til hann var 50 ára held ég. Við skulum bara bíða og sjá.“






