Fingur Mata hugsanlega brotinn

Juan Mata fagnar marki sínu gegn Napoli í gær. stækka

Juan Mata fagnar marki sínu gegn Napoli í gær. Reuters

Juan Mata, leikmaður enska úrvaldeildarfélagsins Chelsea, er líklega fingurbrotinn eftir leik liðsins gegn ítalska félaginu Napoli í Meistaradeildinni í knattspyrnu í gær. Chelsea tapaði 3:1 en Mata skoraði eina mark liðsins.

Hann sagði sjálfur eftir leikinn: „Við þurfum að skoða hann. Kannski er hann brotinn,“ en Mata lenti í samstuði við Salvatore Aronica skömmu eftir að hann skoraði markið sem gæti reynst liðinu dýrmætt. Það er í það minnsta eina líflínan sem leikmenn Chelsea geta tekið með sér á Stamford Bridge í seinni leikinn.

Mata var í það minnsta bjartsýnn spurður af fréttamönnum hvort liðið ætti möguleika. „Ég hef trú á þessu liði, við erum ekki úr leik. Þetta verður ekki auðvelt en ég tel að við getum það.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is