Gerrard: Of löng bið eftir bikar
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að félagið hafi þurfti að bíða of lengi eftir bikar, í sex ár, og það sé tími kominn til að breyta því þegar liðið mætir Cardiff, liði Arons Einars Gunnarssonar, í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley á sunnudaginn kemur.
„Sex ár án bikars er ekki nógu gott í þessu félagi. Þetta er orðinn of langur tími og við vitum það allir. Það er tímabært að koma heim með bikar. Allir vita að félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma en nú erum við á uppleið og allir hungraðir í að komast á sigurbraut á ný. Menn leggja geysilega hart að sér," sagði Gerrard við Liverpool Echo.
Gerrard var í liði Liverpool sem vann þrjá bikara vorið 2001, deildabikarinn, enska bikarinn og UEFA-bikarinn.
„Vonandi er þetta bara byrjunin hjá okkur. Það væri heimskulegt að vinna deildabikarinn og leggjast síðan á meltuna. Þetta er mikilvæg keppni fyrir okkur en við erum með fleiri markmið sem við stefnum á. Ég er sannfærður um að sigur í þessari keppni yrði upphafið á nýjum og góðum kafla í sögu félagsins. Við fengjum örugglega sjálfstraust og hungur til að vinna meira. Þannig var þetta 2001. Við unnum deildabikarinn og enduðum með þrennu.
Ef við vinnum á sunnudag mun þessi leikmannahópur upplifa þá stemningu að ganga um leikvanginn, troðfullan af himinlifandi stuðningsmönnum liðsins. Þegar menn upplifa slíkt, langar þá í meira," sagði Gerrard.






