Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 22.2.2012
| 20:04
Mancini: Möguleiki á að Tévez spili
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, segist hafa tekið afsökunarbeiðni Carlosar Tévez góða og gilda en Argentínumaðurinn birti í gær yfirlýsingu á vef félagsins þar sem hann baðst formlega afsökunar á hegðan sinni.
Eftir sigur sinna manna gegn Porto í kvöld var Mancini spurður hvort Tévez myndi snúa aftur í liðið á þessu tímabili eftir afsökunarbeiðnina.
„Ég er ánægður með hvað Carlos sagði. Á morgun mun ég ræða við hann. Ég hef tekið afsökunarbeiðni hans gilda og það er möguleiki á að hann spili með Manchester City á nýjan leik. Ég hugsa að hann þurfi tvær til þrjár vikur til að æfa áður en hann getur byrjað að spila,“ sagði Mancini.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






