Rekinn en tilnefndur til verðlauna

Lee Clark, fyrrum knattspyrnustjóri Huddersfield. stækka

Lee Clark, fyrrum knattspyrnustjóri Huddersfield. Reuters

Lee Clark, sem var rekinn úr starfi Huddersfield Town í síðustu viku, var í dag tilnefndur sem einn þeirra sem til greina koma með að fá viðurkenningu fyrir einstakan árangur í þremur neðri deildum ensku deildakeppninnar.

Undir stjórn Clarks lék Huddersfield 43 leiki í röð án taps í ensku C-deildinni, frá janúar og þar til í nóvember 2011. Liðið er í harðri baráttu um sæti í B-deildinni og hefur aðeins tapað þrisvar í 30 leikjum á tímabilinu en er þó sjö stigum frá öðru sætinu vegna margra jafntefla. Síðasta vor missti liðið af sæti í B-deildinni þegar það tapaði í úrslitaleik umspilsins fyrir Peterborough.

Þá er Huddersfield tilnefnt í sex mismunandi flokkum fyrir árleg verðlaun ensku deildakeppninnar, oftar en nokkurt annað félag.

Brottrekstur Clarks kom geysilega á óvart í ljósi góðs árangurs liðsins og þessi tilnefning undirstrikar það enn frekar.

Hinir tveir sem tilnefndir eru fyrir þessa viðurkenningu eru Gus Poyet og Dougie Freedman, knattspyrnustjórar B-deildarliðanna Brighton og Crystal Palace.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is