Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 22.2.2012
| 15:45
Rooney spilar ekki
Wayne Rooney verður ekki með Englandsmeisturum Manchester United þegar þeir etja kappi við Ajax í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildar UEFA á Old Trafford annað kvöld.
Að því er fram kemur á vef Manchester United er Rooney með særindi í hálsi og æfði ekki í dag. Búlgarinn Dimitar Berbatov hefur hins vegar hrist af sér meiðsli og er leikfær.
,,Rooney spilar ekki á morgun. Hann hefur verið slappur frá því í leiknum í Amsterdam og var í rúminu mest alla helgina. Við reynum eftir fremsta megni að koma honum af stað fyrir leikinn á sunnudaginn,“ segir Alex Ferguson en þá mætir nýliðum Norwich.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






