Tvísýnt með Rooney fyrir Ajaxleikinn

Wayne Rooney. stækka

Wayne Rooney. Reuters

Wayne Rooney, framherji Manchester United, æfði ekki með liðinu í dag, fyrir seinni leikinn gegn Ajax í 32ja liða úrslitum Evrópudeildar UEFA sem fram fer á Old Trafford annað kvöld.

Skýringar á fjarveru Rooneys liggja ekki fyrir ennþá en líklegt þykir að hann verði hvíldur í leiknum gegn Ajax, enda vann United fyrri leikinn í Amsterdam, 2:0.

Miðjumaðurinn Anderson, sem hefur misst af síðustu leikjum United vegna meiðsla í hné, æfði með liðinu og gæti spilað annað kvöld, og þá var Michael Owen á æfingunni, þó ekki í neinum fótbolta. Hann er í endurhæfingu eftir að hafa meiðst í læri í nóvember.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is