Villas-Boas ekki á leið til Inter

Andre Villas-Boas segir ekkert til í því að hann sé að taka við ítalska knattspyrnuliðinu ... stækka

Andre Villas-Boas segir ekkert til í því að hann sé að taka við ítalska knattspyrnuliðinu Inter. Reuters

André Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, sem er miðað við fréttaflutning á Englandi orðinn valtur í sessi, er nú orðaður við stöðuna hjá ítalska meistaraliðinu Inter. Ástandið er svipað þar á bæ og hjá Chelsea en Claudio Ranieri, sem stýrir ítalska félaginu, er ekki að gera góða hluti.

Inter er 14 stigum frá efsta sætinu og hefur tapað í síðustu fjórum af fimm leikjum í deildinni. Villas-Boas segir ekkert til í þessum sögusögnum. „Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir störfum Ranieris, sem er að upplifa svipaða breytingar hjá Inter og eru hjá okkur.“

Portúgalinn ungi telur að þeir muni báðir halda áfram í sínum störfum en Ranieri stjórnaði Chelsea á sínum tíma. „Við þurfum að hafa trú á vinnu okkar og reyna að ná góðum úrslitum. Þessar sögusagnir eru hluti af fótboltanum en ég vil byggja til framtíðar hjá Chelsea, sem ég er að vinna að. Úrslitin eru ekki jákvæð en við verðum að horfa fram á veginn.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is