West Ham reyndi að fá Torres og Tévez

Chelsea var ekki tilbúið til að lána Fernando Torres. stækka

Chelsea var ekki tilbúið til að lána Fernando Torres. Reuters

David Gold, annar eigenda enska knattspyrnufélagsins West Ham, hefur staðfest að félagið hafi reynt að fá bæði Fernando Torres og Carlos Tévez lánaða frá Chelsea og Manchester City í janúar.

Gold sagði við BBC að West Ham hefði verið í stöðugu sambandi við Manchester City í janúar til að reyna að fá Tévez aftur til félagsins en þar lék hann fyrst í Englandi tímabilið 2006-2007, þegar Íslendingarnir voru við völd hjá West Ham.

„Við héldum um tíma að þetta væri að ganga í gegn og þeir myndu kaupa okkar hugmynd sem byggðist á því að halda honum í leikformi fyrir þá. Við hefðum ekki haft efni á að greiða öll hans laun en hefðum gert ákveðinn samning. Það hefði verið frábært að vera með hann út tímabilið," sagði Gold.

Chelsea hafnaði hinsvegar strax beiðni West Ham um að fá Torres lánaðan í 1-2 mánuði. „Við vorum í vandræðum með að skora og Torres var ekki í náðinni um þetta leyti, þannig að við héldum að Chelsea væri kannski til í að láta hann fara til okkar í stuttan tíma til að koma honum í gang á ný. Þetta var frekar fyrirspurn en tilboð af okkar hálfu," sagði Gold.

West Ham keypti að lokum framherjana Nicky Maynard frá Bristol City og Ricardo Vaz Te af Barnsley. Ekki alveg eins þekktir leikmenn en þeir eru komnir með West Ham á topp ensku B-deildarinnar eftir 4:1 sigur á Blackpool í gærkvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is