Chelsea ekki rætt við Benítez

Rafael Benítez langar aftur til Englands. stækka

Rafael Benítez langar aftur til Englands. Reuters

Umboðsmaður Spánverjans Rafaels Benítez segir að forráðamenn Chelsea hafi ekki haft samband við sinn mann og því séu allar fregnir um að hann sé mögulega að taka við starfi knattspyrnustjóra hjá enska félaginu úr lausu lofti gripnar.

Benítez hefur verið sterklega orðaður við Chelsea sem eftirmaður André Villas-Boas, verði Portúgalanum sagt upp störfum eins og virðist líklegra með hverjum deginum sem líður.

„Það hefur ekkert formlegt gerst í þessu. Þetta eru bara vangaveltur fjölmiðla og Chelsea hefur ekki haft samband við okkur. Við myndum aðeins velta þessum möguleika fyrir okkur ef tilboð bærist," sagði umboðsmaðurinn, Manuel Garcia Quilon við RTE Sport.

Benítez var sagt upp störfum hjá Inter Mílanó í desember 2010 og hefur verið atvinnulaus síðan. Áður stýrði hann Liverpool og Valencia og ljóst er að hann langar aftur til Englands.

„Það er í forgangi hjá Benítez að stjórna liði í ensku úrvalsdeildinni," sagði umboðsmaðurinn ennfremur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is