Gerrard og Campbell í landsliðinu

Steven Gerrard lék síðast með landsliðinu gegn Frökkum í nóvember 2010 og fór þá meiddur ... stækka

Steven Gerrard lék síðast með landsliðinu gegn Frökkum í nóvember 2010 og fór þá meiddur af velli. Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, kemur inní enska landsliðið á ný eftir 15 mánaða fjarveru og Frazier Campbell, sóknarmaður Sunderland, er valinn í fyrsta skipti. Stuart Pearce tilkynnti í dag 25 manna hóp fyrir vináttulandsleik gegn Hollandi sem fer fram á Wembley miðvikudaginn 29. febrúar.

Gerrard missti alveg af landsleikjum síðasta árs vegna meiðsla og lék síðast með landsliðinu 29. febrúar. Margir hafa spáð því að hann taki við fyrirliðastöðunni af John Terry.

Micah Richards er í landsliðshópnum á ný, sem og  Tom Cleverley, sem ekki hefur spilað A-landsleik en verið í hópnum áður. Robert Green, markvörður West Ham, er einnig kallaður inní hópinn eftir nokkra fjarveru.

Pearce, sem stýrir enska liðinu á meðan leitað er að eftirmanni Fabio Capellos, valdi eftirtalda leikmenn:

Markverðir: Scott Carson (Bursaspor), Joe Hart (Manchester City), Robert Green (West Ham United).

Varnarmenn: Gary Cahill (Chelsea), Ashley Cole (Chelsea), Leighton Baines (Everton), Glen Johnson (Liverpool), Phil Jones (Manchester United), Micah Richards (Manchester City), Chris Smalling (Manchester United), Kyle Walker (Tottenham Hotspur).

Miðjumenn: Gareth Barry (Manchester City), Tom Cleverley (Manchester United), Stewart Downing (Liverpool), Adam Johnson (Manchester City), Steven Gerrard (Liverpool), James Milner (Manchester City), Scott Parker (Tottenham Hotspur), Ashley Young (Manchester United), Theo Walcott (Arsenal).

Sóknarmenn: Darren Bent (Aston Villa), Fraizer Campbell (Sunderland), Daniel Sturridge (Chelsea), Wayne Rooney (Manchester United), Danny Welbeck (Manchester United).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is