Huseklepp fer til Birmingham

Erik Huseklepp í landsleik með Noregi. stækka

Erik Huseklepp í landsleik með Noregi. Reuters

Erik Huseklepp, norski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, er á leiðinni til Birmingham City sem lánsmaður frá Portsmouth út þetta keppnistímabil.

Bæði liðin leika í ensku B-deildinni en hafast ólíkt að. Portsmouth er komið í greiðslustöðvun í annað sinn á þremur árum og á fyrir höndum harða baráttu fyrir lífi sínu í deildinni. Birmingham er á mikilli siglingu upp töfluna og er talið eiga góða möguleika á að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Portsmouth fékk Huseklepp frá Bari á Ítalíu síðasta sumar og hann hefur skorað 6 mörk í 27 leikjum í B-deildinni í vetur en Norðmaðurinn leikur ýmist sem sóknarmaður eða kantmaður. Umboðsmaður hans, Tore Pedersen, staðfesti við TV2 í Noregi að samningar væru nokkurn veginn í höfn og hann væri á leið til Birmingham.

Huseklepp er 27 ára gamall og átti marga íslenska samherja í Brann þar sem hann lék frá 2005 til 2011 og varð norskur meistari með liðinu 2007. Hann á að baki 26 landsleiki fyrir Noreg og hefur skorað í þeim 7 mörk.

Huseklepp fór til Bari í janúar 2011 og gekk vel með liðinu en þegar það féll úr ítölsku A-deildinni var hann seldur til Portsmouth fyrir hálfa aðra milljón punda og samdi til þriggja ára.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is