United tapaði en fór áfram

Rafael í baráttu við Dico Koppersá Old Trafford í kvöld. stækka

Rafael í baráttu við Dico Koppersá Old Trafford í kvöld. Reuters

Manchester United er komið í 16-liða úrslit í Evrópudeild UEFA þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Ajax í kvöld, 2:1. United vann einvígið, 3:2, og mætir Athletic Bilbao í 16-liða úrslitunum.

90. Leiknum er lokið með 2:1 sigri Ajax.

86. MARK!! Ajax var að komast yfir með marki frá Alderweireld. Staðan er nú, 2:1, og 3:2 samanlagt fyrir United. Ajax þarf eitt mark til viðbótar til að komast áfram.

74. Nani var nálægt því að koma United yfir. Hann átti þrumuskot en boltinn fór í slánna og yfir markið.

55. Ajax hefur byrjað seinni hálfleikinn vel og hefur átt nokkrar álitlegar sóknir. Ajax þarf tvö mörk til að slá United út.

37. MARK!! Gestirnir voru að jafna metin. Ozbiliz skoraði með föstu skoti rétt utan vítateigslínu.

33. Staðan á Old Trafford er enn, 1:0, fyrir heimamenn. Það má slá því föstu að Englandsmeistarnir fari áfram og þeir mæta spænska liðinu Bilbao í 16-liða úrslitunum.

6. MARK!! Draumabyrjun hjá Manchester United. Mexíkóinn Javer Hernandez fékk frábæra sendingu frá Berbatov og skoraði af öryggi. Staðan, 1:0, og samanlagt, 3:0.

Man Utd: De Gea, Rafael, Jones, Smalling, Fabio, Nani, Cleverley, Park, Young, Hernandez, Berbatov. Varamenn: Amos, Evra, Evans, Carrick, Giggs, Scholes, Welbeck.

Ajax: Vermeer, Alderweireld, Vertonghen, Anita, Sulejmani, Eriksen, De Jong, Lodeiro, Ozbiliz, van Rhijn, Koppers. Varamenn: Cillessen, Ebecilio, Ooijer, Blind, Serero, Aissati, Klaassen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is