Vonast eftir Manchesterslag í Búkarest
Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United sér fyrir sér möguleika á að mæta nágrönnunum í Manchester City í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, þann 9. maí í vor en þar fer fram úrslitaleikur Evrópudeildar UEFA.
United stendur vel að vígi í 32ja liða úrslitunum, vann Ajax í Hollandi, 2:0, og tekur á móti hollensku meisturunum á Old Trafford í kvöld. Manchester City er þegar komið í 16-liða úrslit með því að afgreiða Porto, sigurvegara Evrópudeildarinnar í fyrra, á afgerandi hátt, 4:0 í Manchester og 6:1 samanlagt.
Manchester Evening News spurði Ferguson um skæðustu keppinauta United í Evrópudeildinni.
„Að sjálfsögðu Manchester City. Liðin sem voru í Meistaradeildinni eru alltaf mjög sterk. Það er líka fullt af mjög öflugum liðum í þessari keppni. Hvorki við né City reiknuðum með að vera á þessum slóðum. En við erum þar og þeir líka, og við viljum ná langt. Ég held að bæði liðin ætli sér að vinna keppnina. Það yrði magnaður úrslitaleikur," svaraði Ferguson.
Hann sagði að sínir menn hefðu lært lexíu af viðureignunum við Basel í Meistaradeildinni fyrir áramót. Þá missti United niður 2:0 forskot gegn svissneska liðinu á Old Trafford, liðin gerðu 3:3 jafntefli, og það reyndist heldur betur dýrkeypt þegar upp var staðið.
„Minningarnar frá leiknum við Basel þar sem við vorum 2:0 yfir skjóta upp kollinum reglulega. Ég er sannfærður um að ekkert kæruleysi eða vanmat verður til staðar í kvöld. Við erum með gott forskot, því verður ekki neitað. Maður myndi alltaf vera sáttur við slíkt, sérstaklega þegar eftir er leikur á Old Trafford.
Við gerðum mistök í Meistaradeildinni, og var refsað fyrir þau. Það erfiðasta í kvöld yrði að lenda marki undir. Við verðum að komast hjá því. Við verðum að mæta vel stemmdir til leiks, sjá til þess að menn ætli sé að vinna leikinn og spila eðlilega. Ajax heldur bolta geysilega vel, enda hefur það alltaf verið hugmyndafræðin á bakvið liðið. Við verðum að höndla það og ógna marki þeirra eins mikið og við getum," sagði Ferguson.






