Dempsey á leið til Liverpool

Clint Dempsey í leik gegn Liverpool.
Clint Dempsey í leik gegn Liverpool. AFP

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Fulham hafi samþykkt 10 milljóna punda tilboð frá Liverpool í bandaríska sóknarmanninn Clint Dempsey.

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool vonast til að geta gengið frá samningi við Bandaríkjamanninn á næstu dögum en Dempsey, sem er 29 ára gamall og skoraði 23 mörk á síðustu leiktíð, hafnaði nýjum samningi við Fulham og á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Lundúnaliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert