Liverpool undirbýr tilboð í Joe Allen

Brendan Rodgers stýrði Allen hjá Swansea.
Brendan Rodgers stýrði Allen hjá Swansea. Reuters

Liverpool undirbýr nú tilboð í miðjumanninn Joe Allen, leikmann Swansea, samkvæmt Sky Sports en Brendan Rodgers vann með Allen hjá velska liðinu áður en hann tók við stjórnartaumunum hjá Liverpool.

Swansea hefur ekkert tilboð borist enn frá Liverpool en heimildir Sky Sports herma að Liverpool ætli að sjá hversu ákveðið Swansea sé að halda í Allen.

Allen er þessa dagana í æfingabúðum með breska Ólympíuliðinu en hann átti mjög góða frumraun í ensku úrvalsdeildinni með Swansea á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert