Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 19.11.2012
| 23:15
Reina: Eðlilegt að Suárez sé eftirsóttur
Pepe Reina, markvörður Liverpool, segir eðlilegt að samherji sinn Luis Suárez sé í sigtinu hjá öðrum félögum eftir frábæra frammistöðu það sem af er leiktíð í ensku úrvalsdeildinni.
Suárez er kominn með 10 mörk á tímabilinu eftir að hafa skorað tvö gegn Wigan á laugardag.
„Luis er funheitur. Hann er í frábæru formi og virðist alltaf líklegur til að skora sem er alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkur,“ sagði Reina.
„Hann mun vekja áhuga fjölda félaga, það er bara eðlilegt, en hann er ánægður hjá Liverpool sem er það eina sem skiptir máli fyrir okkur og stuðningsmennina,“ bætti Spánverjinn við.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





