Tekst Everton að halda Baines?

Leighton Baines í leik með Everton gegn Liverpool.
Leighton Baines í leik með Everton gegn Liverpool. AFP

Leighton Baines, vinstri bakvörður Everton og enska landsliðsins í knattspyrnu, er orðaður við Chelsea í dag en blaðið Independent segir að hætt sé við að Everton fái það gott tilboð í hann í janúar að því verði ekki hægt að hafna.

Áður hefur verið fjallað um áhuga Manchester United og París SG á að fá Baines í sínar raðir en talið er að kaupverðið á honum sé um 15 milljónir punda.

Independent segir að áhugi stóru liðanna á Baines sé skiljanlegur þar sem hann sé nánast hinn fullkomni bakvörður. Verjist vel, eigi frábærar fyrirgjafir og sendingar, og sé að auki aukaspyrnusérfræðingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert