Mancini neitar að afskrifa titilinn

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Man. City. stækka

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Man. City. AFP

„Við stóðum okkur vel því þetta var erfitt,“ sagði Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City eftir 1:0 sigurinn á Aston Villa á útivelli í kvöld þar sem Carlos Tévez skoraði sigurmarkið.

City er þar með 12 stigum á eftir toppliði Manchester United líkt og fyrir helgi, og Mancini vonast til að sínir menn framkalli kraftaverk líkt og í fyrra þegar þeir lönduðu Englandsmeistaratitlinum eftir magnaðan endasprett.

„Það var mikilvægt að halda forskoti United í 12 stigum, og það er ekkert hægt að útiloka nú þegar 10 leikir eru eftir. Ef við höldum áfram að vinna er aldrei að vita, þannig er fótbolti,“ sagði Mancini. „Það datt engum í hug í fyrra að þetta væri hægt í fyrra en þetta eru 12 stig í 10 leikjum. Ef þeir tapa fjórum...“ bætti Ítalinn við.

Mancini staðfesti einnig að Jack Rodwell hefði tognað aftan í læri í leiknum og yrði frá keppni næstu 3-4 vikurnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda