Mourinho: Sir Alex er einstakur
Jose Mourinho vonast til að vera enn starfandi sem knattspyrnustjóri á áttræðisaldri líkt og kollegi hans hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson. Mourinho stýrir Real Madrid í seinni leiknum við United í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld á Old Trafford.
Mourinho staðfesti við fréttamenn í dag að Iker Casillas markvörður myndi ekki spila leikinn annað kvöld en Casillas er nýbyrjaður að æfa eftir handarmeiðsli. Áður hafði Ferguson staðfest að Phil Jones myndi ekki spila vegna meiðsla, en að öðru leyti eru engin ný tíðindi hvað meiðsli varðar hjá liðunum.
Mourinho hefur unnið góða sigra á Old Trafford í gegnum tíðina en einnig þurft að sætta sig við töp, og var spurður út í afrek liða sinna á vellinum.
„Síðast þegar ég kom hingað var það með Inter í Meistaradeildinni og við töpuðum, en ég hef stýrt Porto, Inter og Chelsea hérna margoft. Ég hef unnið, gert jafntefli og tapað. Mér er sama um liðna tíð. Ég hugsa bara um leikinn á morgun og þar getur allt gerst. Ég þekki fótboltann og svona stórleiki nægilega vel til að vita að þetta getur farið á hvorn veginn sem er,“ sagði Mourinho sem ræddi einnig um Ferguson eins og áður segir.
„Þetta er þess háttar starf að maður verður bara betri eftir því sem maður eldist. Reynslan gerir mann betri. Það væri frábært ef mér entist heilsan til að vera enn knattspyrnustjóri á áttræðisaldri. Sir Alex er einstakur. Mér er orða vant að ætla að auka hróður hans og þá virðingu sem hann á skilið frá öllum,“ sagði Mourinho.




