Tévez tryggði City sigur á Villa

Carlos Tévez fagnar sigurmarki sínu í dag. stækka

Carlos Tévez fagnar sigurmarki sínu í dag. AFP

Englandsmeistarar Manchester City styrktu stöðu sína í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1:0 sigri á Aston Villa í Birmingham í kvöld í lokaleik 28. umferðarinnar. Carlos Tévez skoraði eina markið undir lok fyrri hálfleiks í fjarveru Sergio Agüero sem missti af leiknum vegna meiðsla.

City er með 59 stig í 2. sæti deildarinnar, nú fimm stigum á undan Tottenham og 12 stigum á eftir toppliði Manchester United.

Aston Villa er í 18. og þriðja neðsta sæti deildarinnar en liðið er þó jafnt næsta liðið fyrir ofan, Wigan, að stigum.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Aston Villa - Man. City, 0:1
(Carlos Tévez 45.)

90. Leik lokið. Heimamenn lögðu allt í sölurnar til að jafna metin en það dugði ekki til.

75. Samir Nasri var að koma inná fyrir Carlos Tévez.

72. STÖNG! Yaya Touré átti gott skot af vítateigslínunni sem fór í vinstri stöngina og út. Edin Dzeko náði frákastinu og skoraði en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

70. Heimamönnum gengur illa að skapa sér færi en munurinn er enn bara eitt mark. Brett Holman er kominn inná í stað Charles N'Zogbia.

45. Hálfleikur.

45.+1. MARK! City er komið yfir, 1:0, eftir skelfileg mistök Ciaran Clark. Edin Dzeko náði af honum boltanum á stórhættulegum stað, kom honum á Carlos Tévez sem lék á markvörðinn og skoraði auðveldlega.

37. STÖNG! Eftir laglegt spil City-manna komst Pablo Zabaleta í færi hægra megin í teignum og hann lét vaða en boltinn fór í fjærstöngina og út.

24. Það á ekki af Jack Rodwell að ganga en hann er farinn meiddur af velli eftir að hafa tognað aftan í læri. Edin Dzeko kemur inná í hans stað og þá færist kannski meira líf í sóknarleik gestanna.

21. Christian Benteke átti hörkuskalla að marki City eftir hornspyrnu en Carlos Tévez var vel með á nótunum og bjargaði á marklínu.

20. Heimamenn hafa verið sterkari aðilinn þessar fyrstu 20 mínútur en engin færi sem vert er að nefna hafa litið dagsins ljós.

1. Leikur hafinn.

0. Fyrirliði Villa, hollenski miðvörðurinn Ron Vlaar, er meiddur í kálfa og missir af leiknum.

0. Byrjunarlið City er komið inn hér að neðan. Sergio Agüero meiddist í hné á æfingu og er ekki með en Carlos Tévez er í fremstu víglínu. Fyrirliðinn Vincent Kompany er sömuleiðis enn meiddur, sem og Maicon og Micah Richards.

Aston Villa: Guzan, Lowton, Clark, Baker, Bennett, Westwood, Delph, N’Zogbia, Agbonlahor, Weimann, Benteke.
Varamenn: Given, Sylla, Holman, Dawkins, Lichaj, El Ahmadi, Bowery.

Man. City: Hart, Zabaleta, Kolo Touré, Nastasic, Clichy, Garcia, Milner, Rodwell, Silva, Tévez, Yaya Touré.
Varamenn: Pantilimon, Lescott, Kolarov, Nasri, Sinclair, Barry, Dzeko.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda