Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 7.3.2013
| 22:26
Gylfi fékk 8 í einkunn hjá Sky Sports
Gylfi Þór Sigurðsson fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína með Tottenham í 3:0 sigri liðsins á Inter Mílanó en liðin áttust við í fyrri viðureign félaganna í 16-liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu á White Hart Lane í kvöld.
Gylfi, sem skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Gareth Bale, fékk 8 í einkunn hjá Sky Sports og var efstur í einkunnargjöf sjónvarpsstöðvarinnar ásamt Gareth Bale og Jan Vertonghen.
Gylfi fékk 7 í einkunn hjá vefsíðunni goal.com en varnarmaðurinn Jan Vertonghen, sem skoraði þriðja mark Tottenham, fékk hæstu einkunn leikmanna Tottenham-liðsins eða 8.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





