Cazorla hæstánægður hjá Arsenal

Santi Cazorla fagnar marki fyrir Arsenal en hann hefur leikið afar vel fyrir liðið á ... stækka

Santi Cazorla fagnar marki fyrir Arsenal en hann hefur leikið afar vel fyrir liðið á sinni fyrstu leiktíð í Englandi. AFP

Spánverjinn Santi Cazorla hefur notið sín vel fyrstu sjö mánuðina í herbúðum Arsenal. Hann segist hafa verið vel meðvitaður um muninn á enska og spænska boltanum, og því hafi verið auðvelt að aðlagast.

„Persónulega þá hef ég átt sjö góða mánuði hérna hjá Arsenal í þessari frábæru deild sem úrvalsdeildin er. Hún er svolítið ólík spænsku deildinni en ég hef aðlagast vel og leikstíll Arsenal hefur gert mér það auðvelt,“ sagði Cazorla.

Arsenal hefur gengið illa á leiktíðinni og er í 5. sæti úrvalsdeildarinnar, en er þó eina enska liðið sem enn tórir í Meistaradeild Evrópu.

„Á vellinum hefur þetta gengið upp og niður hjá okkur, við höfum átt okkar góðu og slæmu kafla. Liðið skortir stöðugleika og við höfum gert dýrkeypt mistök. Ef við losnum við þau þá batnar staða okkar mikið í framtíðinni,“ sagði Cazorla sem er 28 ára gamall og kom frá Malaga síðasta sumar.

„Ég bjóst við því að koma í deild sem væri líkamlegri, með meiri hraða og krafti en ég væri vanur. Ég var búinn að búa mig undir það, sérstaklega líkamlega þáttinn, og þess vegna var ekki erfitt fyrir mig að aðlagast. Ég vildi fara til stórs félags með ríka sögu eins og Arsenal. Hér er ég ánægður. Félagið á ótrúlega marga stuðningsmenn um allan heim sem sýnir hvað þetta er stórt félag. Ég er hæstánægður með allt hérna enda sér félagið vel um sína leikmenn,“ sagði Cazorla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda