Ferguson með tvö blöð í banni

Sir Alex Ferguson var æfur yfir fréttaflutningi sumra ensku blaðanna. stækka

Sir Alex Ferguson var æfur yfir fréttaflutningi sumra ensku blaðanna. AFP

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United var æfur yfir fréttum enskra miðla þess efnis að ósætti væri á milli hans og Wayne Rooney, og að Rooney væri á förum í sumar.

Á fréttamannafundi í dag sagðist Ferguson hafa bannað tvö ensku blaðanna af þessum sökum, og er talið að þar sé um að ræða Daily Star og Daily Mail.

„Þetta er einfaldlega algjört kjaftæði. Ég hef þegar bannað tvö blaðanna og fulltrúar þeirra munu ekki fá að koma hingað fyrr en þeir biðjast afsökunar,“ sagði Ferguson á fréttamannafundi í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda