Ferguson: Missi trúna á leiknum

Nani var rekinn af velli í vikunni og það var …
Nani var rekinn af velli í vikunni og það var rangur dómur að mati Sir Alex Ferguson sem og margra annarra. AFP

Rauða spjaldið sem Nani fékk snemma í seinni hálfleik í seinni leik Manchester United og Real Madrid í Meistaradeildinni á Old Trafford á þriðjudagskvöld var ástæðan fyrir því að United féll úr leik að mati Sir Alex Ferguson. Hann segir þetta í þriðja skiptið sem liðið falli úr leik í keppninni vegna mistaka dómara.

„Þetta er í þriðja sinn sem við föllum úr leik í Evrópu út af ákvörðun dómara. Það er erfitt að taka því,“ sagði Ferguson í dag, en það var í fyrsta sinn sem hann tjáir sig um dóminn því hann mætti ekki á fréttamannafund að honum loknum.

„Það er erfitt að hafa enn trú á leiknum þegar maður sér hvað hefur gerst síðustu árin varðandi þessar ákvarðanir,“ bætti Skotinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert