Mancini: Rooney einn sá besti í heimi
Roberto Mancini knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City segir afar hæpið að Wayne Rooney muni yfirgefa Manchester United, eins og Sir Alex Ferguson undirstrikaði reyndar fyrr í morgun. City hefur verið nefnt sem eitt fárra félaga sem hefðu efni á að eignast Rooney.
Eftir að Rooney var ekki valinn í byrjunarliðið gegn Real Madrid í vikunni birtist fjöldi frétta í enskum miðlum um meint ósætti milli hans og Ferguson, og var United sagt reiðubúið að selja kappann. Ferguson hefur nú sagt þessar fréttir hreinræktað kjaftæði og Mancini gerir sér litlar vonir um að Rooney fari frá United.
„Ég tel að Rooney sé einn besti framherji Evrópu en það er mjög hæpið að hann fari frá Man. Utd. Ég býst ekki við því,“ sagði Mancini og gaf lítið fyrir meint ósætti Rooney og Ferguson.
„Ég þekki ekki þetta mál. Ég get skilið að Rooney sé vonsvikinn yfir að fá ekki að spila en svona lagað gerist hjá öllum liðum. Eftir viku er málið gleymt,“ sagði Mancini.




