Rooney fer ekki frá Old Trafford
Sir Alex Ferguson segir að Wayne Rooney verði áfram hjá Manchester United. Ekki standi til að selja piltinn. AFP
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, blés í morgun út af borðinu allar vangaveltur um að Wayne Rooney færi frá félaginu í sumar. Ferguson sagði Rooney verða leikmann Manchester United á næsta keppnistímabili.
Ferguson lét þessu ummæli falla við fyrirspurn á blaðamannafundi Manchester United á Old Trafford í morgun. „Þið hafið mín orð fyrir því að Rooney verður áfram á Manchester United á næsta keppnistímabili," sagði Ferguson á blaðamannafundinum og bætti við að á milli sín og Rooney væri engin ágreiningur.
Hann staðfesti ennfremur að Rooney muni taka þátt í viðureign Manchester United og Chelsea á sunnudag.





