Villas-Boas varkár - Bale verður í banni
André Villas-Boas knattspyrnustjóri Tottenham var engan veginn tilbúinn að fagna sigri strax í einvíginu við Inter í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar þrátt fyrir góðan 3:0 sigur á White Hart Lane í gærkvöld. Liðin mætast á San Siro eftir viku og þá verður enginn Gareth Bale með Tottenham.
Bale fékk að líta gult spjald fyrir leikaraskap í leiknum og er þar með kominn í eins leiks bann. Villas-Boas sá björtu hliðarnar á því máli, en minni hætta er nú á að Bale fari í bann á seinni stigum keppninnar.
„Núna höfum við hreinsað spjöldin hjá Bale og vonandi komumst við áfram án hans. Því miður er ekkert öruggt ennþá því við þurfum að fara á San Siro sem er alltaf mjög erfitt,“ sagði Villas-Boas.
„Við lékum frábæran sóknarbolta í 90 mínútur. Þeir fengu lítið af færum á meðan að við fengum fjölda af þeim. Þetta var stórkostlegt Evrópukvöld,“ sagði Portúgalinn.




