Eyjamenn fá leikmann frá QPR

David James og Hermann Hreiðarsson, þjálfarar ÍBV, eru að stækka …
David James og Hermann Hreiðarsson, þjálfarar ÍBV, eru að stækka hjá sér hópinn. mbl.is/Ómar

Bradley Simmonds, 19 ára gamall enskur knattspyrnumaður, er genginn til liðs við Eyjamenn og leikur með þeim í sumar.

Simmonds, sem er miðjumaður, var síðast á mála hjá úrvalsdeildarliðinu QPR en var lánaður þaðan til utandeildaliðanna Staines Town og Woking í vetur. Hann var leystur undan samningi við félagið á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert