Emil orðaður við Sunderland

Emil Hallfreðsson á fullri ferð á Laugardalsvelli.
Emil Hallfreðsson á fullri ferð á Laugardalsvelli. mbl.is/Kristinn

Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland, bæði í enskum og ítölskum fjölmiðlum í kvöld.

Emil leikur með Verona, sem verða nýliðar í ítölsku A-deildinni á komandi tímabili. Hann var í röðum Tottenham á árunum 2005 til 2007 en fékk þá ekki tækifæri með aðalliði félagsins.

Ítalinn Paolo Di Canio er knattspyrnustjóri Sunderland og hann hefur verið geysilega virkur á félagaskiptamarkaðnum í sumar og nánast keypt nýtt lið til félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert