United kaupir engan í janúar

David Moyes, stjóri Manchester United.
David Moyes, stjóri Manchester United. AFP

Englandsmeistarar Manchester United hafa ekki uppi nein áform um að styrkja leikmannahópinn í janúarglugganum að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum í kvöld.

David Moyes, stjóri United, er ekki með uppi áform um að taka upp veskið nú í janúar og ef satt reynist þá mun það fara illa í stuðningsmenn félagsins enda er liðið í 7. sæti og á það á hættu að ná ekki meistaradeildarsæti.

Spurður hvort United ætli að kaupa einhverja leikmenn í janúar sagði Moyes;

„Ég held ekki. Ég býst við því að við förum út á leikmannamarkaðinn í sumar frekar en í janúar,“ segir Moyes við enska blaðið Mirror.

Manchester United tekur á móti Swansea í 64-liða úrslitum enskum bikarkeppninnar á morgun ef sá leikur fer illa er víst að pressan mun aukast á Moyes sem tók við Sir Alex Ferguson eftir síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert