Höfðinglegar móttökur hjá Defoe

Jermain Defoe og Michael Bradley á blaðamannafundinum þar sem þeir …
Jermain Defoe og Michael Bradley á blaðamannafundinum þar sem þeir voru kynntir sem leikmenn Toronto. Bradley kemur til liðsins frá Roma. AFP

Jermain Defoe samdi sem kunnugt er við lið Toronto í MLS deildinni. Defoe fékk höfðinglegar móttökur frá stuðningsmönnum liðsins en þeir sungu og trölluðu á blaðamannafundinum þar sem Defoe var kynntur. 

Gríðarlegur áhugi er meðal borgarbúa á liði Toronto síðan Defoe samdi við liðið. Ársmiðasala hefur tekið gríðarlegan kipp og treyjur með nafni Defoe seljast eins og heitar lummur. 

Blaðamannafundur Toronto liðsins fór fram á bar í Toronto og það var því kannski viðbúið að fjörið væri mikið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert