Fullyrða að Suárez fari í sumar

Luis Suárez fagnar marki fyrir Liverpool.
Luis Suárez fagnar marki fyrir Liverpool. AFP

Spænska dagblaðið Marca fullyrðir í dag að úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Luis Suárez muni yfirgefa Liverpool í sumar og að hann sé þegar búinn að ákveða hvar hann spili á næstu leiktíð.

Marca segir að Suárez verði ekki áfram á Bretlandseyjum og þar með sé ljóst að Manchester City takist ekki að krækja í hann þrátt fyrir mikinn áhuga. Þar með beinist böndin sterklega að Real Madríd sem sé líkast til eina félagið sem sé tilbúið til að greiða þá upphæð sem til þurfi til að kaupa hann af Liverpool. Þar yrði hann í mögnuðu sóknartríói með þeim Cristiano Ronaldo og Gareth Bale.

Suárez er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 28 mörk, enda þótt hann hafi verið í leikbanni í fyrstu fimm umferðunum síðasta haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert