„Sir Alex vissi hvert ég vildi fara“

Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson. AFP

José Mourinho segir að sir Alex Ferguson hafi vitað það á síðustu leiktíð að hann var að undirbúa að snúa aftur á Stamford Bridge og taka við Chelsea fyrir núverandi tímabil.

Þessi ummæli féllu hjá Mourinho þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði ekki tekið við Manchester United þegar sir Alex yfirgaf starfið.

„Ég ræddi við sir Alex eftir að mitt Real Madrid-lið sló United út úr Meistaradeildinni á síðasta tímabili og ég ég sagði honum hvað ég vildi gera. Ég sagði honum að ég vildi fara til Chelsea. Það vissu allir að Benítez yrði ekki áfram og allir vissu um tengsl mín við félagið og þetta var tækifæri sem ég vildi ekki sleppa,“ sagði Mourinho.

„Svo ég veit ekki hvort sir Alex hafi hugsað mig sem stjóra United eða ekki. Það er ekki málið. Máli er að hann vissi það skýrt að ég vildi fara til Chelsea.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert