Moyes sektaði og áminnti þrjá leikmenn sína

Moyes fagnar með lærisveinum sínum eftir að United komst yfir …
Moyes fagnar með lærisveinum sínum eftir að United komst yfir í leiknum á móti Bayern. AFP

David Moyes knattspyrnustjóri Manchester United hefur sektað þrjá af leikmönnum sínum og veitt þeim áminningu.

Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Danny Welbeck, Tom Cleverley og Ashley Young en þeir fóru allir út á lífið í Manchesterborg nokkrum tímum eftir að United var slegið út úr Meistaradeildinni af Evrópumeisturum Bayern München í síðustu viku. Myndir af leikmönnum birtust í enskum fjölmiðlum daginn eftir leikinn þar sem þeir greinilega við skál í miðbæ Manchester.

Enska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Moyes hafi kallað á þremenningana inn á teppið í gær, sektað þá og veitt þeim áminningu fyrir háttarlagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert