Sviptingar hjá Aston Villa

Paul Lambert stjóri Aston Villa með Ian Culverhouse aðstoðarmanni sínum …
Paul Lambert stjóri Aston Villa með Ian Culverhouse aðstoðarmanni sínum sem nú hefur verið sendur í leyfi frá störfum vegna rannsóknar innan félagsins. AFP

Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur sett Ian Culverhouse og Gary Karsa yfirmann knattspyrnumála hjá úrvalsdeildarliðinu í leyfi frá störfum vegna rannsóknar innan félagsins.

BBC greinir frá málinu sem virðist nokkuð óljóst, því þar kemur ekki fram um hvað rannsóknin snýst eða hvers vegna Culverhouse og Karsa hafa verið sendir í leyfi frá störfum.

Gordon Cowans og Shay Given leysa Culverhouse og Karsa af á meðan þeir verða í leyfinu og fagnar Paul Lambert stjóri Aston Villa því að njóta aðstoðar Given og Cowans. 

Aston Villa er í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti. Næsti leikur Villa í deildinni er gegn Southampton á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert