„Munum berjast til þrautar“

Frá viðureign Everton og Crystal Palace í gær.
Frá viðureign Everton og Crystal Palace í gær. AFP

Leighton Baines bakvörðurinn snjalli í liði Everton segir að með tapinu á móti Crystal Palace í gærkvöld sé það ekki lengur í þeirra eigin höndum að ná fjórða sæti deildarinnar.

Everton tapaði óvænt fyrir spútnikliði Palace á heimavelli og þegar fjórar umferðir eru eftir er Everton í fimmta sætinu, stigi á eftir Arsenal.

„Þetta er ekki lengur í okkar höndum. Við þurfum að bíða hvað aðrir gera en við höfum alltaf sagt að það verður erfitt að ná fjórða sætinu. Það er auðvitað verra að geta ekki ráðið eigin örlögum en við munum berjast til þrautar,“ segir Baines.

Everton fær Englandsmeistara Manchester United í heimsókn á sunnudaginn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert