Allen: Frábær áfangi í höfn

Joe Allen t.v. í baráttu við Robert Snodgrass leikmann Norwich …
Joe Allen t.v. í baráttu við Robert Snodgrass leikmann Norwich í leiknum í dag. AFP

„Sú staðreynd að leikið verður í Meistaradeild Evrópu á Anfield á næsta keppnistímabili er frábær," sagði Joe Allen, leikmaður Liverpool, glaður í bragði eftir sigur Liverpool á Norwich, 3:2, í fyrr í dag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 

„Liverpool er svo stórt félag að það verðskuldar að vera í keppni þeirra bestu," sagði Allen ennfremur. 

Hann fer þó varlega í meistaradraumana þótt staða Liverpool sé afar vænlega í efsta sæti deildarinnar, fimm stigum á undan Chelsea sem í öðru sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. 

„Við sláum engu föstu ennþá. Hver leikur sem eftir er skiptir miklu mál. Framundan er erfiður leikur um næstu helgi og undir hann verðum við að vera tilbúnir þegar flautað verður til leiks," sagði Joe Allen, leikmaður Liverpool. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert