Luis Suárez framherjinn frábæri hjá Liverpool á markakóngstitilinn vísan í ensku úrvalsdeildinni en Úrúgvæinn hefur skorað tíu mörkum meira næsti maður sem er félagi hans í Liverpool-liðinu, Daniel Sturridge.
Suárez skoraði í gær sitt 30. mark í deildinni á tímabilinu í sínum 30. leik en hann var í banni í fyrstu leikjum Liverpool á tímabilinu.
Markhæstu leikmenn eru:
30 - Luis Suárez, Liverpool
20 - Daniel Sturridge, Liverpool
18 - Yaya Touré, Man City
15 - Sergio Agüero, Man City
15 - Jay Rodriguez, Southampton
15 - Wayne Rooney, Man Utd
14 - Wilfried Bony, Swansea
14 - Oliver Giroud, Arsenal
14 - Eden Hazard, Chelsea