Januzaj valdi að spila fyrir Belgíu

Adnan Januzaj í leik með Manchester United.
Adnan Januzaj í leik með Manchester United. AFP

Adnan Januzaj, hinn ungi leikmaður Manchester United, hefur ákveðið að spila fyrir hönd Belgíu. Knattspyrnusamband Belgíu tilkynnti þetta nú siðdegis.

Januzaj, sem er 19 ára gamall, er fæddur í Belgíu en er Kósóvó-Albani að upplagi, en einnig af tyrkneskum ættum. Hann gat því valið á milli þess að spila fyrir Belgíu, Albaníu, Tyrkland og Serbíu, og þá höfðu Englendingar látið í veðri vaka að hann gæti spilað fyrir þeirra hönd.

Januzaj hefur í vetur spilað 24 leiki með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert