Moyes á leiðinni til Tottenham?

David Moyes - fer hann á White Hart Lane?
David Moyes - fer hann á White Hart Lane? AFP

David Moyes er líklegur kandídat í stöðu knattspyrnustjóra Tottenham Hotspur, sem mun ráða nýjan mann í staðinn fyrir Tim Sherwood í sumar, samkvæmt frétt London Evening Standard í dag.

Blaðið segir að Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sé einlægur aðdáandi Moyes og hafi haft hann sterklega í sigtinu áður en André Villas-Boas var ráðinn til félagsins árið 2012. Hinsvegar séu aðrir forráðamenn Tottenham efis um Moyes vegna þess hve illa honum gekk hjá Manchester  United en þar var Moyes sagt upp í vikunni eftir aðeins tíu mánuði í starfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert