Engu tilboði verið tekið í Gylfa

Gylfi Sigurðsson í baráttunni við Adam Lallana.
Gylfi Sigurðsson í baráttunni við Adam Lallana. AFP

Ólafur Már Sigurðsson bróðir knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham segir í samtali við RÚV í dag að engu tilboði hafi verið tekið í Gylfa Þór hjá Tottenham, en stuðningsmannavefur Crystal Palace, Five Year Plan greindi frá því fyrr í dag að Crystal Palace hafi samþykkt kauptilboð í Gylfa sem næmi 8 milljónum punda.

Ólafur Már segir ekkert hæft í þessum fréttum, í samtali við RÚV og segir mikið þurfi að gerast til að Gylfi yfigefi Tottenham í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert