Tilboð Crystal Palace í Gylfa samþykkt?

Gylfi Þór Sigurðsson gæti verið á leið til Crystal Palace.
Gylfi Þór Sigurðsson gæti verið á leið til Crystal Palace. AFP

Vefsíða stuðningsmanna Crystal Palace í Englandi, Five Year Plan Fanzine heldur því fram á vef sínum í dag að tilboði Crystal Palace upp á 8 milljónir punda í íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson hafi verið samþykkt af Tottenham.

Reynist frétt stuðningsmannafélagsins rétt og kaupin gangi eftir yrði Gylfi dýrasti leikmaður Crystal Palace frá upphafi, en hæsta fjárhæð sem félagið hefur greitt fyrir leikmann var 6,5 milljónir punda fyrir Dwight Gayle.

Five Year Plan Fanzine segir að þó að tilboði Palce í Gylfa hafi verið tekið af Tottenham eigi Gylfi þó enn eftir að semja um kaup og kjör við Crystal Palace og því sé ekkert enn í hendi.

Engu tilboði verið tekið í Gylfa

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert