Ekkert nýtt tilboð í Lovren

Dejan Lovren.
Dejan Lovren. AFP

Ronald Koeman knattspyrnustjóri Southampton segir í viðtali við Sky í dag að ekkert nýtt tilboð hafi borist í króatíska miðvörðinn Dejan Lovren. Liverpool hefur verið orðað við kappann að undanförnu en talið er að Southampton selji Lovren ekki fyrir minna en 20 milljónir punda.

„Ef ekkert breytist geri ég ekki ráð fyrir öðru en að Lovren verði áfram leikmaður Southampton,“ er haft eftir Koeman.

Talið er að Koeman reyni að fá til sín Hollendinginn Ron Vlaar fari Lovren frá Southampton. Koeman segir þó að það komi ekkert í ljós hvaða varnarmann Southampton kræki í ef Lovren fari, enda sé Lovren ekki enn farinn frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert