Costa ætlar strax að vinna titla hjá Chelsea

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Spænski framherjinn Diego Costa sem Chelsea keypti nýverið frá Atlético Madrid á 32 milljónir punda ætlar strax að hefjast handa við að endurgjalda félaginu kaupverðið með því að vinna titla.

„Ég mun persónulega berjast fyrir því að félagið nái sem lengst og reyna að tryggja að það verði í baráttu um alla titla sem eru í boði,“ sagði Costa sem hjálpaði Atlético Madrid að vinna spænsku deildina í fyrsta sinn í 18 ár.

„Ég er hluti af frábærum hópi leikmanna og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að gefa stuðningsmönnum það sem þeir vilija - og það eru titlar,“ sagði Costa við sjónvarpsstöð Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert