Man.City vann bandarísku meistarana

Micah Richards hjá Man.City leikur á Jimmy Medranda leikmann Sporting …
Micah Richards hjá Man.City leikur á Jimmy Medranda leikmann Sporting í leiknum í nótt. AFP

Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan sigur á bandarísku meisturunum Sporting Kansas City þegar liðin mættust í æfingaleik í Kansas City í nótt.

Bruno Zuculini, Dedryck Boyata, Aleksandar Kolarov og Kelechi Iheanacho skoruðu mörk City en sá síðasti er Nígeríumaður sem er til reynslu hjá liðinu. CJ Sapong skoraði mark heimamanna og jafnaði þá, 1:1, í fyrri hálfleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert