Redknapp: Erfitt að semja við Kolbein

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. mbl.is/Eggert

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins QPR, segir að erfitt sé að ná samningum við Kolbein Sigþórsson um að gerast leikmaður félagsins.

„Við erum búnir að ná samkomulagi við Ajax um kaupverð og erum að reyna að semja við leikmanninn sjálfan, en það gengur erfiðlega. Við höfum hitt umboðsmann hans, sem er bróðir hans, en náðum ekki að semja. En það getur enn gerst," segir Redknapp í viðtali við blaðið West London Sport.

Vefur stuðningsmanna Ajax segir að félögin séu búin að semja um kaupverðið sem sé 6 milljónir evra, eða um 4,7 milljónir punda. Kolbeinn á eitt ár eftir af samningi sínum við hollensku meistarana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert