Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist feginn því að hafa ekki náð að klófesta enska bakvörðinn Luke Shaw frá Southampton, sem síðan fór til Manchester United fyrr í sumar.
Chelsea reyndi að kaupa hinn 19 ára Shaw í janúar, en háar launakröfur hans fældi liðið að lokum frá. Liðið krækti þess í stað í Brasilíumanninn Filipe Luis frá Atlético Madrid, og borgar honum að sögn einungis um þriðjung af því sem Shaw vildi í laun.
„Ef við hefðum borgað þessum 19 ára strák það sem hann vildi væri búið að ganga frá okkur. Við hefðum rústað stöðugleikanum, bæði í búningsklefanum og í fjármálunum. Ef þú borgar 19 ára strák svona fjárhæðir þá fara aðrir að banka á dyrnar og krefjast þess sama,“ sagði Mourinho.